Við mælum með að nota Maskan 1-3 sinnum í viku á hreina húð. Maskinn er borin á og látinn vinna í um 5 mín, húðin er því næst nudduð laust með hringlaga hreyfingum þar til mest allur maskinn er búin að krullast af.
Virkni:
Ananas sýrumaskinn losar um dauðar húðfrumur og nærir húðina um leið. Steinseljusteina olía losar út harða húðfitu og vinnur á t.d fílapenslum. Húðin fær fallegra yfirbragð og ljóma eftir aðeins eitt skipti. Í grófu kornum maskans eru ensími sem örva kollagenmyndun og næra húðina, ekki þarf að skrúbba þar sem ananas sýran sér um það að losa dauðu húðfrumurnar. Maskinn er tær snilld fyrir brúnkumeðferðir þar sem þurrkublettir skemma oft fallegan lit.
Hvernig á að nota maskann:
Gott er að hreinsa húðina og loka húðinni með smá köldu vatni á andlitið. Því næst bera maskann á og leyfa honum að vinna í 5 mín. Því næst skal nudda laust af, þar til maskinn hefur krullast af og skola svo andlitið með volgum þvottapoka. Við mælum svo með að loka húðinni með köldu vatni og næra svo andlitið með serumi eða rakakremi. Við mælum með að forðast augnsvæði og einungis strjúka maskanum mjúklega yfir andlitið.
Fyrir allsherjar andlitsdekur mælum við með því að nota ClayBabe maskann okkar, því næst pineapple peeling mask og að lokum Hydra glow djúpnærandi maskan okkar sem inniheldur cupuacu smjör (það bindur raka í húðina).
Sért þú með rósroða þá mælum við ekki með neinum peeling möskum.
Í krukkunni eru 30 gr.